Honda+E:ny1

Nýr Honda e:Ny1

Fyrsti 100% rafmagnaði jepplingurinn frá Honda.

Verð með styrk frá 6.950.000 kr.

Verð frá 7.850.000 kr.

  • 100% rafmagn
  • Allt að 412 km drægni
  • 360° myndavélar
  • Honda Sensing öryggiskerfi
  • 15" Honda Connect margmiðlunarskjár
  • Honda Parking Pilot bílastæðaaðstoð

Nýr og alrafmagnaður Honda e:Ny1

Stílhrein og fáguð hönnun, allt að 412 km drægni og fyrsta flokks öryggi. Honda e:Ny1 markar nýtt upphaf fyrir rafmagnaða jepplinga. Einnig er hann hlaðinn búnaði með nýjustu tækni og notendavænum 15" skjá.

Komdu og reynsluaktu

Bóka reynsluakstur
Honda e:Ny1-séð á hlið
Honda e:Ny1-farþegarrými
Honda e:Ny1-skjár
Honda e:Ny1-farangursrými
Honda e:Ny1-álfelgur
  • Fágað útlit bílsins einkennist af mýkt og flæði sem veitir e:Ny1 sérstöðu sem fyrsta flokks rafbíll.

    · Hönnun nýja e:Ny1-bílsins er afgerandi, snjöll og fáguð sem veitir honum einstakt yfirbragð og sérstöðu í flokki rafbíla

    · Ný hönnun á aðalljósum, grilli, stuðara, hliðarsvuntu og felgum til að veita e:Ny1 einstaklega afgerandi útlit

    · Hönnun bílsins sækir innblástur í rennilegar útlínur HR-V en skögunin að framan er töluvert minni sem skapar örugga ásýnd

    · Advance-útfærslur státa einnig af þakglugga sem hleypir dagsbirtu í innanrýmið og bætir útsýni ökumanns

    · Stórar 18" felgur, mikil sporvídd og lítil skögun stuðla að afgerandi útliti ásamt því að auka stöðugleika og lipurð fyrir sportlega akstursupplifun

  • · Einstakt innanrýmið er hannað með þægindi í fyrirrúmi til að veita öllum farþegum afslappandi og áhyggjulausa akstursupplifun

    · 15,1 tommu snertiskjár er í miðju innanrými e:Ny1 sem skapar einstakt og fágað andrúmsloft

    · Innbyggt 10,25 tommu stafrænt mælaborð undirstrikar þá tæknilegu fágun sem einkennir rafbílinn

    · e:Ny1 nýtir loftdreifikerfið, sem fyrst var kynnt í HR-V, til að skapa róandi umhverfi fyrir farþega með því að beina lofti frá þeim og koma í veg fyrir heitan og kaldan blástur frá gluggum

    · Gæði innanrýmisins leggja áherslu á lúxus og þægindi sem skapa einstakt andrúmsloft

    · Rúmgott 346 lítra farangursrými

  • Nýtt notendaviðmót og háþróuð notendamiðuð tækni auðveldar farþegum að tengjast og verða eitt með bílnum og möguleikar fyrir snjallhleðslu verða hluti af hversdagsleikanum.

    · 15,1 tommu snertiskjár fyrir miðju og 10,25 tommu stafrænt mælaborð færa viðskiptavinum Honda nýtt og háþróað notendaviðmót

    · Stílhrein og vel skipulögð valmynd gerir snertiskjáinn einfaldan í notkun og kemur í veg fyrir truflanir

    · Algengir hnappar eru undir tilheyrandi virkni svo að þú þurfir ekki að leita að þeim á valmyndinni

    · Svæðið „Tenging“ á efri hlutanum býður upp á algenga aksturseiginleika, s.s. leiðsögn og bakkmyndavél

    · „Akstursaðstoð“ sýnir stöðu og stillingar bílsins fyrir hljóð og samskipti, s.s. tiltekin forrit, aflstreymismæli og EV-valmynd

    · Neðri hluti skjásins er tileinkaður stjórnhnöppum fyrir loftkælingu

    · 10,25 tommu mælaborðið fyrir framan ökumanninn sýnir fjöldann allan af aksturs- og afþreyingarupplýsingum og hægt er að stilla það eftir hentisemi

    · Mögulegt er að tengja farsíma við bílinn með þráðlausu Apple Car Play eða snúrutengdu Android Auto

    · Rafakstursupplýsingar eru innbyggðar í notendaviðmótið svo hægt sé að sjá ítarlegar upplýsingar um orku og hleðslu (hversu mikil hleðsla er eftir, hleðslustöðu, hleðslutíma og nálægar hleðslustöðvar)

  • Háþróaðiraksturs- og árekstraröryggiseiginleikar bílsins tryggja öryggi farþega frá öllum hliðum

    Háþróuð Honda SENSING-öryggistækni er staðalbúnaður:

    Hemlakerfi með árekstrarvörn (CMBS)

    Sjálfvirkur hraðastillir (ACC) með hraðaminnkun og umferðarteppuaðstoð

    Kerfi sem kemur í veg fyrir að ekið sé út af veginum

    Akreinastýring

    Árekstrarvörn með stjórnun inngjafar (að aftan)

    Sjálfvirkt háljósakerfi

    Umferðarskiltagreining og ISL-hraðatakmörkun

  • Örugg en lipur akstursupplifun sem byggð er á hugmyndafræði Honda og sameinar kraftmikinn akstur ogkosti þess að aka rafbíl.

    · Grundvallarmarkmið okkar við hönnun bílsins var að skapa mjúka og lipra akstursupplifun sem tryggir að það sé bæði skemmtilegt og spennandi að aka bílnum á sama tíma og þægindi og rými fyrir farþega eru í fyrirrúmi

    · Við lögðum áherslu á að bíllinn gæti skilað áreiðanlegu drægni fyrir daglega notkun, fyrirsjáanlegum akstri og stöðugleika

    · Við hönnuðum bílinn með áherslu á mjúkar hraðabreytingar án þess að tapa þeirri kraftmiklu og viðbragðsfljótu hröðun sem einkennir rafbíla.

Verið velkomin í sýningarsal Öskju

Hér má sjá nýja bíla á lager eða eru væntanlegir innan tíðar.

Honda e:Ny1-séð að aftan