Nýr Honda HR-V 1.5 i-MMD Hybrid.
Viðbragðsþýð hybrid aflrásin í HR-V hentar við allar aðstæður, jafnt í innanbæjarakstri eða akstri á þjóðvegum. Hún skilar hröðun sem vekur ánægju, hvert sem leiðin liggur. Valið stendur um þrjár mismunandi akstursstillingar; Sport fyrir kraftmikinn akstur, Normal fyrir þýðan akstur og Econ fyrir meiri sparneytni. Eitt er víst og óháð akstursstillingum að sjálfhlaðandi e:HEV aflrásin skilar þér lengra, er umhverfisvænni og dregur úr eldsneytiskostnaði.
5 ára ábyrgð og innifalin þjónustuskoðun fyrstu 3 árin.
Með öllum nýjum Honda bifreiðum fylgir 5 ára ábyrgð og þjónustuskoðanir fyrstu 3 árin.*
*Innifalin þjónustuskoðun miðast við 10.000 km ekna á ári í þrjú ár. Nái bifreiðin 30.000 km innan þriggja ára fellur innifalin þjónustuskoðun niður eftir það.