Bifvélavirki Kia og Honda verkstæði
Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða bifvélavirkja á Kia/Honda verkstæðið. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls í Reykjavík.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
- Þjónustuskoðanir
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í bifvélavirkjun
- Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
- Ökuréttindi
Af hverju Askja?
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
- Allir hafa rödd sem hlustað er á
- Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
- Líkamsræktaraðstaða
Í anda jafnréttisstefnu Öskju hvetjum við öll áhugasömtil að sækja um óháð kyni
Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hákon Jónas Gylfason þjónustustjóri Kia og Honda verkstæðis hjg@askja.is
Umsóknarfrestur frá:31.10.2024
Umsóknarfrestur til:12.12.2024