Fyrsti alrafmagnaði lúxusjeppinn í fullri stærð frá Mercedes-Benz.
Bíll sem dekrar við þig og verndar öllum stundum. Til viðbótar við sjö sæti í nýjum EQS SUV er afturás með stýringu staðalbúnaður sem býður upp á ótrúlega lipurð í akstri. Stafræn lýsing í hátæknivæddri framljósatækni bílsins varpar merkingum og viðvörunartáknum á veginn.
Tæknin eykur til muna öryggi í akstri í óvissum aðstæðum.
Flæðandi og hnökralausir yfirborðsfletirnir skapa glæsilegt samspil skýrleika og kraftmikillar hönnunar á yfirbyggingu. Sérvaldar innréttingar og fíngerðar LED ljósaeiningar gefa innanrými hágæða svipmót og glæsileg litasamsetning dregur fram mikla tilfinningu fyrir rýminu.
Allt að 616 km drægi og 1800 kg dráttargeta.