Framsækin tækni og háþróuð hönnun
GLE 53 AMG Plug-in Hybrid er einstakur bíll sem sameinar öfluga frammistöðu og umhverfisvæna tækni með tilkomumiklu útliti. Bíllinn er sannur AMG með 6 strokka vél auk aflmikils rafmótors sem skilar bílnum 544 hestöflum og hröðun 0-100 km/klst á einungis 4,7 sekúndum.
GLE 53 AMG er með drægni allt að 86 km á rafmagni og er hægt að hlaða bílinn úr 10% í 80% á aðeins 20 mínútum.
Innanrýmið er með nýjustu kynslóð MBUX margmiðlunarkerfi sem inniheldur sérsniðna skjái og hleðslustillingar. Í bílnum er einnig mikið úrval staðalbúnaðar, svo sem rafdrifið glerþak, Burmester® hljóðkerfi og 360° myndavélakerfi.