Nýr alrafmagnaður G-Class
G-Class rafbíllinn sameinar þekktan uppruna sinn og heimsklassa torfærugetu við framúrstefnulega eiginleika Mercedes-Benz. Yfirbyggingin á G-Class EQ fellur hnökralaust að sígildri hönnun með nútímalegu útiliti. Svart grill með lifandi LED ljósaborða að framan og hlífðarlistar gefa glæsilegt og klassískt yfirbragð.
Innanrýmið er einnig afar glæsilegt, ný hönnun á stýri, klætt nappa leðri ásamt fjölnota hnöppum og hita í stýri. Einnig er nýjasta kynslóð MBUX sem endurbætir enn frekar háþróað upplýsinga- og afþreyingarkerfi.
G-Class rafbíllinn er nánast óstöðvandi í torfærum, með eDrive er rafmótor við hvert hjól til að tryggja nákvæma togstýringu. Í akstri upplifiru einstaklega lipran en um leið stöðugan akstur.