Mercedes-Benz heimsfrumsýndi hinn nýja rafbíl EQB á sunnudaginn. EQB er hreinn rafbíll og fimmti bíllinn sem Mercedes-Benz kynnir á stuttum tíma undir merkjum Mercedes-EQ. Nú á dögunum voru bæði EQA og EQS frumsýndir. Fyrsti rafbíll Mercedes-Benz var EQC, þá kom fjölnotabíllinn EQV og enn fleiri bílar undir merkjum EQ eru væntanlegir á næstunni m.a. EQE, sem og jeppaútfærslur af EQE og EQS.
EQB, sem er væntanlegur á markað í Evrópu í lok þessa árs, er rúmgóður jepplingur og með mikið pláss fyrir fólk og farangur. Bíllinn býður upp á sæti fyrir sjö manns en í þriðju og öftustu röð eru sæti fyrir tvo einstaklinga allt að 165 cm að hæð. Farangursrýmið er stórt og plássið er allt að 1.700 lítrar með sæti niðri. Bíllinn býður upp á mjög gott aðgengi og sætisstaða ökumanns og farþega er há þannig að það er gott útsýni út úr bílnum. Þá eru margar sniðugar lausnir varðandi geymslurými og ýmis þægindi sem koma sér vel fyrir stórar fjölskyldur. EQB er þannig tilvalinn ferðabíll og nýtist einnig mjög vel í útivistina og áhugamálin.
Hinn nýi EQB er með allt að 478 km drægni samkvæmt WLTP staðli. Bíllinn er búinn öflugum 66,5 kW rafhlöðum sem skila prýðilegu afli. EQB er 4684 mm að lengd, 1834 mm að breidd og 1667 mm að hæð. Bíllinn er byggður á hinum nýja MFA2 undirvagni frá Mercedes-Benz sem er einnig notaður í EQA sem frumsýndur var fyrir stuttu og fleiri rafbíla sem Mercedes-EQ smíðar og hannar. EQB er í boði bæði með framhjóla- og aldrifi.