Alls voru nýskráðir 324 Mercedes-Benz bílar á árinu 2020. Markaðshlutdeild Mercedes-Benz hér á landi tvöfaldaðist á milli ára, fór úr 1,7% árið 2019 í 3,5% árið 2020 á sama tíma og sala nýrra fólksbíla dróst saman um 20,1% á síðasta ári.
Ekkert annað merki fyrir utan Tesla jók svo miklu við sig í markaðshlutdeild á árinu 2020. Sportjepparnir EQC, GLE og GLC voru mest seldu tegundirnar hjá Mercedes-Benz á síðasti ári.