Kia Sportage söluhæstur hjá Kia
Einstaki söluhæsti bíllinn hjá Öskju á árinu 2019 var Kia Sportage en af rafbílum var Kia Niro söluhæstur. Kia mun bjóða mjög breiða rafbílalínu á þessu ári eða alls 10 bíla og eru sex þeirra nú þegar í sölu en fjórir munu bætast í flotann á árinu. Hér er um að ræða Kia e-Soul, Kia Optima Plug-in Hybrid í tveimur útfærslum, Kia Niro Plug-in Hybrid og Kia Niro Hybrid.
Alls eru því í boði fimm mismunandi gerðir rafknúinna bíla en Kia var á dögunum útnefndur framleiðandi ársins í flokki Plug-in Hybrid fólksbíla hjá Green Fleet. XCeed Plug-in Hybrid og Ceed Sportswago Plug-in Hybrid væntanlegir á næstu mánuðum og er forsala á þessum bílum þegar hafin hjá Öskju.
EQC söluhæstur hjá Mercedes-Benz
Rafbíllinn EQC kom á markað á síðasta ári og er nú söluhæsti Mercedes-Benz bíllinn á Íslandi. Til viðbótar bæstist við annar hreinn rafbíll á árinu 2020 þegar EQA kemur á markað í lok ársins. Báðir þessir bílar eru með áætlað yfir 400 km drægi á hreinu rafmagni. Á árinu 2020 eykst framboð af EQ Power tengiltvinnbílunum frá Mercedes-Benz þegar tveir vinsælustu jepparnir, GLC og GLE koma í tengiltvinnútfærslu í upphafi ársins en B-Class og GLA bætast við síðar á árinu.
Nú þegar eru fáanlegir A-Class, C-Class, E-Class og S-Class. Áætlað er að 80% af seldum Mercedes-Benz fólksbílum á árinu 2020 verði hreinir rafmagnsbílar eða tengiltvinnbílar.
Á árinu 2020 koma fyrstu atvinnubílarnir frá Mercedes-Benz sem knúnir eru rafmagni. Atvinnubílarnir eSprinter, eVito og EQV verða fáanlegir með vorinu. Auk þeirra má gera ráð fyrir að sjá eCitaro hópferðabílinn á Íslandi á komandi mánuðum eftir að hafa verið í reynsluakstri hjá stærstu hópferðafyrirtækjum landsins undanfarnar vikur.
Forsala hafin á Honda e
Honda hefur markað sér afgerandi stefnu í rafvæðingu og á næstu 36 mánuðum mun Honda kynna sex nýja umhverfisvæna bíla á markað í Evrópu. Þar af verða tveir rafbílar og fjórir Hybrid bílar. Nýr Honda e rafbíll og Honda Jazz í Hybrid útfærslu eru fyrstu bílarnir af þessum sex nýju, umhverfisvænu bílum úr smiðju Honda og koma þeir báðir á þessu ári.
Honda e var forsýndur í nýjum sýningarsal Hondu að Fosshálsi 1 á dögunum og er forsala þegar hafin á þessum spennandi rafbíl. Honda CRV Hybrid var söluhæstur Honda bíla á síðasta ári og var á meðal mest seldu bíla landsins.