21. feb. 2024

Frumsýnum nýjan og enn glæsilegri Mercedes-Benz EQB

Laugardaginn 24. febrúar kl. 12-16 í sýningarsal Mercedes-Benz að Krókhálsi 11

mercedes-benz-eqb-ad-utan-nyr

Ný kynslóð í fremstu röð.

  • Endurnýjað útlit og uppfærð hönnun innanrýmis.
  • Í fyrsta sinn er fimm sæta EQB fáanlegur með krók. Allt að 1.700 kg dráttargeta í fimm sæta útfærslu.
  • Endurbættir skynjarar sem samanstanda af nýrri fjölnota myndavél og nýrri bakkmyndavél.

EQB hefur öðlast miklar vinsældir sökum áberandi SUV-yfirbyggingar sem skilar sér í rúmmiklu innanrými, kraftmikillar drifrásar og góðri drægni. EQB verður nú enn eftirsóknaverðari þökk sé uppfærðu útliti, aukinni sparneytni (446 km drægni), MBUX-kerfi með endurbættri raddstýringu og uppfærðum akstursaðstoðarkerfum.

mercedes-benz-eqb-styri-og-skjar
Fágað innanrými og einstök hönnun EQB.

Nú einnig hægt að tengja eftirvagn við EQB.


EQB er rafjeppi með allt að sjö sætum. Í fyrsta sinn er fimm sæta EQB einnig fáanlegur með krók, ásamt ESP stöðugleikaaðstoð fyrir tengivagn.

Hinn sjö sæta EQB býður upp á gott rými fyrir fjölbreyttar fjölskyldur og býður upp á meira pláss fyrir þá sem þér þykir vænt um. Þriðja sætaröð er rúmgóð og með ISOFIX barnastólafestingum og því má koma þar fyrir barnabílstólum.

mercedes-benz-eqb-ad-innan
Meira pláss fyrir þá sem þér þykir vænt um.

Einkennandi stjörnumynstur.

Uppfært útlit EQB er nútímalegt og framúrskarandi með skýrt og áberandi yfirbragð.
Með uppfærðri hönnun á svörtu grillinu með einkennandi stjörnumynstri gefur EQB stærri gerðum bíla í rafbílaflokki Mercedes-Benz ekkert eftir hvað útlit varðar.

Skoða nýjan EQB