Askja lokar fyrr vegna landsleiks

Bílaumboðið Askja hefur ákveðið að loka fyrr í dag eða kl. 15.30 vegna landsleiks Íslands og Austurríkis í lokakeppni EM í Frakklandi. Mikil eftirvænting ríkir meðal íslensku þjóðarinnar fyrir þennan mikilvæga leik og munu landsmenn án efa sitja límdir við sjónvarpstækin á meðan honum stendur. Með hagstæðum úrslitum í leiknum kemst Ísland í 16 liða úrslit keppninnar.
ÁFRAM ÍSLAND!
Neyðarnúmer verkstæðis: 664 2130