Við erum afar stolt af því að hafa hlotið hina eftirsóttu viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki fyrir árið 2024.
Viðurkenningin er veitt af Creditinfo og byggir á ströngum skilyrðum sem aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja uppfylla.
Askja hefur lengi verið í fremstu röð á íslenskum bílamarkaði, þar sem metnaður, fagmennska og framúrskarandi þjónusta einkenna starfsemina. Með vörumerki á borð við Mercedes-Benz, smart, Kia og Honda hefur Askja fest sig í sessi sem traustur samstarfsaðili bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.